Um fristund.is

Fristund.is er sameiginlegur upplýsingavefur Reykjavíkurborgar, Kópavogs, Hafnarfjarðar, Mosfellsbæjar og Garðabæjar þar sem aðgengilegar eru, á einum stað, upplýsingar um fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf. 

Fristund.is er eingöngu upplýsingavefur og skráningar fara fram hjá viðkomandi félagi eða þjónustuaðila. Á vefnum má finna upplýsingar frá íþróttafélögum, frístundamiðstöðvum, menningarstofnunum og öðrum aðilum sem bjóða upp á frístundastarf á svæðinu. 

Vefurinn birtir sjálfkrafa upplýsingar úr skráningarkerfunum Abler og Völu. Námskeiðshaldarar sem nýta önnur kerfi geta skráð sín námskeið inn í gegnum viðburðadagatal Reykjavíkurborgar, hvirfill.reykjavik.is, þeim að kostnaðarlausu. 

Aðeins þau námskeið sem skráð eru í gegnum Abler, Völu eða Hvirfil birtast á fristund.is að svo stöddu og því er vefurinn ekki tæmandi yfirlit yfir framboð.
Það er von okkar að þetta verði til þæginda fyrir alla borgarbúa og fyrir félög til að kynna sína starfsemi. 

 

Hvernig skrái ég námskeið á fristund.is

Ef þú notar skráningarkerfin Abler og Völu birtast námskeið sjálfkrafa á fristund.is. 

Ef námskeiðshaldarar nýta önnur skráningarkerfi eða hafa ekki skráningarkerfi er hægt að skrá námskeið í gegnum viðburðadagatal Reykjavíkurborgar, hvirfill.reykjavik.is

Stofna þarf notanda í kerfinu með því að smella á Innskrá í hægra horni og velja Búa til aðgang. Þegar aðgangur hefur verið stofnaður er hægt að skrá námskeið sem birtast á fristund.is þegar hakað er við að þau eigi að birtast þar. 

Mikilvægt er að skrá allar upplýsingar um námskeið eins nákvæmlega og kostur er, svo sem aldurshóp, staðsetningu, dagsetningar og lýsingu. Rétt og vönduð skráning eykur líkurnar á að námskeið birtist þegar notendur leita eða sía eftir ákveðnum atriðum á vefnum. 

Styrkir fyrir frístundir

Sveitarfélögin bjóða upp á mismunandi stuðning við þátttöku í frístundastarfi, svo sem frístundaávísun, hvatapening eða frístundastyrk. Markmið þessara úrræða er að styðja við þátttöku barna og ungmenna í fjölbreyttu frístundastarfi. 

Reglur, upphæðir og fyrirkomulag geta verið mismunandi eftir sveitarfélögum. Nánari upplýsingar um hvað gildir hjá hverju sveitarfélagi má nálgast með því að smella á viðkomandi sveitarfélag: Reykjavík, KópavogurHafnarfjörður, Mosfellsbær og Garðabær

Viltu tengja skráningarkerfi við fristund.is

Vinsamlega hafðu samband við menningar- og íþróttasvið Reykjavíkurborgar í gegnum netfangið fristundakort@reykjavik.is til að fá nánari upplýsingar um tengingar. Þar verður þér leiðbeint áfram til réttra aðila eftir þörfum.